|
Lærðu að smíða
vefkerfi sem Ágæti Íslendingur. Oft var þörf en nú er nauðsyn! Þær efnahagslegu hamfarir sem hvolfst hafa yfir þjóðina á undanförnum mánuðum hafa meðal annars skapað brýna þörf fyrir nýjar, tekjugefandi hugmyndir og viðskiptaleiðir sem einstaklingar, fyrirtæki og fjölskyldurnar í landinu geta nýtt sér í baráttunni við vaxandi atvinnuleysi, auknar skuldir og minnkandi kaupmátt. Ein er sú tekjuleið sem allt of fáir Íslendingar hafa lært að nýta sér þótt hún sé í sjálfu sér bæði greiðfær og auðlærð fyrir flesta sem eiga tölvu, hafa aðgang að Netinu og búa yfir sæmilegri enskukunnáttu. Sú leið er fólgin í því að framleiða efnislegar sölusíður sem laða að sér vaxandi umferð og gefa af sér meiri tekjur en það kostar að halda þeim úti. Allir sem hafa áhuga, tíma og sköpunarkraft geta auðveldlega framleitt svona vefsíður og þar með opnað fyrir ótæmandi sölumöguleika og vaxandi tekjur fyrir sig og sína. Margar efnissíður = Vefkerfi Með því að framleiða fleiri efnislegar vefsíður, beina vaxandi umferð á þær og tengja þær síðan saman verður til vefkerfi. Og því stærra sem vefkerfið verður því meiri verður umferðin, sem aftur leiðir til aukinna sölu- og tekjumöguleika. Það má líkja þessu við venjulegt fiskinet ... því fleiri sem möskvarnir eru því fleiri fiskar koma í netið og því fleiri sem fiskarnir verða því meiri verða verðmætin. ------------------------------- Við heitum Bergur Ísleifsson og Kristín Þormar og okkur langar að bjóða öllum hressum og skemmtilegum Íslendingum á fróðlegt og hnitmiðað 30-daga námskeið í smíði og uppsetningu tekjuskapandi vefsíðna og vefkerfa á Netinu. Á námskeiðinu ætlum við að kenna sem flestum að búa til einföld og nánast sjálfvirk vefkerfi sem byggja á efnislegum sölusíðum og gefa af sér meiri tekjur en það kostar að reka þau. Þegar þú hefur lært að gera þetta einu sinni þá geturðu sett upp eins mörg svona kerfi og þú vilt, allt eftir því hversu miklar tekjur þú vilt skapa þér á Netinu: Því meira sem þú framleiðir því hærri verða tekjurnar. Hvað kostar námskeiðið Námskeiðið kostar ekki neitt og er opið öllum sem vilja læra að búa sér til tekjur á Netinu á einfaldan hátt. Og fyrir þá skeptísku þá er best að endurtaka að námskeiðið kostar EKKERT og hefur þess utan engar skuldbindingar í för með sér fyrir þá sem það sækja. Námskeiðið fer allt fram í gegnum tölvupóst og á Netinu. Við sýnum þér nákvæmlega, skref fyrir skref, hvernig við byggjum upp efnislega vefsíðu (og síðan vefkerfi) sem innan 30 daga byrjar að skila meiri tekjum en kostnaði, þ.e. hagnaði. ... og svona gerir þú ef þú vilt skoða þetta: Þú skráir þig á póstlistann hér fyrir neðan, staðfestir skráninguna og færð póst frá okkur sem vísar þér á kennslustund nr. 1 Næsta dag færðu annan póst sem vísar þér á kennslustund nr. 2 Næsta dag færðu þriðja póstinn frá okkur sem vísar þér á kennslustund nr. 3 ... og svo koll af kolli ... ... þar til póstur nr. 30 kemur til þín á þrítugasta degi og vísar þér á kennslustund nr. 30. Þar með lýkur námskeiðinu og þú hefur séð hvernig við búum til vefsíður og vefkerfi sem skilar hagnaði í hverjum mánuði þaðan í frá. Eftir það getur þú búið til og eignast eins margar svona vefsíður og eins mörg svona vefsíðukerfi og þú kærir þig um að reka og þar með aukið hagnað þinn frá viku til viku alveg þangað til þú ert komin(n) með þær tekjur sem þú vilt hafa ... Þannig að ... skráðu þig á póstlistann hér fyrir neðan ... það er fyrsta skrefið.
Vinsamlega ath: Við mælum sterklega með að
þú notir Gmail til að
tryggja að póstarnir frá |